
wonder woman, já líst vel á það hlutverk!
nú hef ég mikið verið að velta vöngum yfir því hvernig ég á að komast yfir allt sem að ég vil og þarf að gera. það er mjög nauðsynlegt að vera duglegur að læra fyrir skólan og duglegur í vinnunni til að ná árangri. einnig er mikilvægt fyrir sálina að stunda yoga og hugleiða og líkaminn þarf líka sína hreyfingu(fyrir utan yogað). listamaðurinn í mér þarf að fá að taka ljósmyndir, teikna og syngja. elskandinn í mér þarf að fá að kyssa, elska og njóta, félaginn í mér vill fara út að skemmta sér og kíkja á kaffihús í góðravinahópi, svo þarf maður sinn skammt af tónlist og kvikmyndum auk annarra nauðsynlegra afþreyinga. náttúruunnandinn þarf að kíkja uppá fjöll, vaða læki og veiða. mamman í mér þarf að fá að hugsa um aðra, elda, prjóna og þrífa. stelpan í mér þarf að fá að máta föt, skoða tískublöð og eyða tímunum saman í að snyrta mig. strákurinn í mér þarf að fá að sparka í bolta, keyra hratt eða fara á snjósleða.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home