Thursday, September 28, 2006



...stjörnurnar í Konstantínópel

alla tíð og tíma hef ég verið mjög hrifin af stjörnum. Ljós langt útí himingeiminum, sem verða til í geysistórum gas- og rykskýjum, einhvers staðar í vetrarbrautunum. Fjöldi stjarna í Vetrarbrautinni skiptir hundruðum milljarða, maður lítur þó sjaldnast upp til að horfa á þær.

Þegar ég var lítil bjó ég eitt sinn til smá jólaskúlptúr, jólasveinninn var að fara á sleðanum sínum upp vetrarbrautina. Mér hlýnaði við tilhugsunina af vetrarbrautinni, töfrandi fallegt orð.

Í kvöld ætla ég að horfa uppí himininn. Kannski sér maður pólstjörnuna eða óríon, eina fegurstu stjörnu sólkerfisins. Kassiópía er einnig töfrandi og svo auðvitað stjörnumerki mitt,fiskamerkið. Þær stjörnur eru fyrir neðan Andrómedu og við hlið Pegasusar.

ég segi, njótið!!!

..the stars in Constantinople

stars lit the sky tonight. ever since i was a little i have admired the stars, their beauty is overwhelming, their magic makes you smile and their mistery makes you interested…

tonight we enjoy…

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

jæja krúttan mín. sástu svo eitthvað? það er nú ansi bjart hér í stokkhólmi í kvöld..og það þarf ekki einu sinni að slökkva ljósin til að sjá það ;) þú ættir kannski bara að skella þér hingað í stjörnuskoðun?!
sögur herma að hér séu glæsilegir jólamarkaðir í byrjun des ;)

12:00 PM  
Anonymous Anonymous said...

æhh..ég er svo misheppnuð. ætlaði auðvitað að segja að það væri ansi STJÖRNUbjart hér í kvöld!

12:01 PM  

Post a Comment

<< Home